Home

November 5th, 2009

London framundan

  • Nov. 5th, 2009 at 12:38 AM
 Víh! Við fljúgum til London í fyrramálið. Ég var seinast í London fyrir 2 árum síðan. Fyrir hrun. Áhugavert. Þarna var ég þar sem Íslendingar voru að eigna sér allar helstu verslanir í London og ég hafði í raun ekki hugmynd um það. Kannski vissi ég af einhverjum, en ég held að mér hafi aðallega verið alveg sama. Nú hafa Íslendingarnir misst allt í borginni og maður vogar sér varla að segjast vera Íslendingur. Takk strákar.

En samt sem áður, tökum við 6 ára afmæli okkar með "fyrir hrun" stæl og gistum á hinum virta Marriott hóteli, þetta Marriott er rétt fyrir utan central London þannig við munum aðallega vera bara að slaka á og njóta þess að vera á fínu hóteli. Allavega þegar við vorum á Marriott í Róm var það fínasta hótel sem ég hafði nokkurn tímann gist á og þá fengum við svítuna án þess að spyrja þannig ég hef svo sannarlega góða reynslu, vonandi verður þessi gisting líka eins góð.

Það verður gott að komast örlítið í burtu. Bara rétt til að halda geði. Ég hef einhvern veginn gert þetta seinustu ár. Hef alltaf farið til útlanda á nokkra mánaða fresti. Það er bara einhvern veginn fast í mér. Það var orðið óbærilegt áður en ég fór til New York. Þá fór ég ekkert í 10 mánuði! Getur það verið? Vá. Það er langur tími. Áður fór ég frekar reglulega, London... París... bakpokaferðalag... næs. Alltaf gaman að fara til útlanda. Ég held samt að það sé kominn tími til að ég fari að fara lengra út í heim.

Annars heldur skólinn áfram sinn vanagang. Ég fór í Haute Couture kúrsinn sem gekk ágætlega, en hefði viljað fá meira út úr honum. Svo á eftir honum var þessi frábæri kúrs með Harley Hughes þar sem hann kenndi okkur að gera karlmannafatnað. Það var geðveikt gaman og gaman að fá nýjan kennara. Svo núna er ég í frekar löngum kúrs, 4ra vikna þar sem við erum að hanna aukahluti eða s.s. accessories. Ég hef aldrei fílað að hafa mikið af aukahlutum þannig ég bjóst ekki við að fíla þennan kúrs en annað kom einhvern veginn í ljós. Það er meira í aukahluti spunnið en bara hálsmen eða hattar. Töskur, hanskar og skór kallast líka aukahlutir. Ég nýt mín helst í að hanna það held ég. En ég ætla að nýta tækifærið í London og fara fókusera meira á aukahluti þegar ég skoða í búðum. Jeij! Heimavinnan mín felst í að skoða í búðum! Loksins! Meh... annars ætti ég nú að vera heima hjá mér að læra, hehemm...

Vonandi get ég slakað aðeins á í jólafríinu. Tori Amos er að fara gefa út jóladisk þannig ég er virkilega spennt að heyra hann, hún hefur aldrei gefið út jóladisk þannig ég mun svo sannarlega njóta þess að fara í jólafrí, setjast með heitt súkkulaði og hlusta á jólalög. Hljómar bara vel. Hljóóómar vel. Jú, kannski maður fari bara að hlakka til jólanna. Svona örlítið.

Tags:

Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose