Home

Draumar

  • Mar. 8th, 2009 at 10:47 PM
 Ókei, update.

Ég varð fokk veik í svona einn sólarhring og var síðan heila viku nánast að ná upp matarlystinni. Það var ekki fallegt. En það þýðir ekkert að láta neitt stoppa sig og maður heldur bara áfram að mæta í skólann og tilraunast með snið, láta þau í léreft, laga þau, láta þau aftur í léreft og svo á endanum saumar maður final flíkina og fittar hana á módel, en ég hef ekki fengið að gera það ennþá þar sem við höfum ekki fengið nein alvöru módel í fitting ennþá sem er eiginlega frekar glatað. En það verður vonandi casting fljótlega og þá getum við farið að fitta á módelin sem við notum. Það styttist óðum í sýninguna og nú eru 3 vikur til stefnu og ég er ekki enn komin með knitwearið sem ég ætla að sauma úr. En ég ætla að panta það á morgun og þá fæ ég það vonandi sent alla leið frá Vík nógu tímanlega. En ég veit að ég get þetta. Ef ég neyðist til að vinna 24/7 þá er ég game því þetta er það sem ég vil gera. Ég myndi ekki vilja gera neitt annað í heiminum. Þess vegna held ég að ég muni fá móðursýkiskast á sýningunni sjálfri því þetta er draumurinn. Ég sver það að ég var 12 ára, lítil stelpa sem labbaði inn í Pfaff og keypti sér saumavél og dreymdi um að einn daginn hanna föt og sýna á tískusýningu. Það hafa allavega verið milljón skipti sem ég hef ímyndað mér nákvæmlega þetta og það er fáránlegt að það sé að fara gerast. Það er svona eins og að hafa lista af draumum og ég get gert CHECK við þennan. Ókei, kannski ekki alveg þar sem stóri draumurinn er að hafa heila sýningunni bara með fötum sem ég hannaði. En þetta er allavega stórt skref í átt að þeim draumi!

Það er svo fáránlegt að hugsa til þess að fólk elti ekki draumana sína. Það eru svo margir sem halda sér niðri, reyna að vera skynsamir til að eiga örugga framtíð en maður sér það núna með kreppunni að maður er aldrei fjárhagslega öruggur! Þannig í rauninni hefur maður ekki efni á því að elta EKKI draumana sína.

Ég er svo mikil draumóramanneskja. Ég veit að venjulega er frekar skynsöm þegar kemur að því að skipuleggja, reyni oftast að kaupa mjög ódýrt og er ekki á seinasta séns með einhverjar ritgerðir en ég held að umfram allt þá er ég draumóramanneskja því ég læt mér ekki nægja að vera alltaf stelpa úr litlum bæ með lítil markmið. Stundum sé ég ekki hlutina sem ég geri sem eru svo óraunverulegir í raun. Þegar ég fór um daginn að ná í mömmu mína úr systraboði þá hitti ég systur hennar sem óskuðu með til hamingju með vinnuna í New York. Þær voru svo spenntar fyrir mína hönd, konur á fimmtugs- og sextugsaldri flestar og ég fattaði að ég læt hlutina gerast. Ef ég vil eitthvað þá læt ég það gerast. Ég býð ekki eftir að einhver rétti mér hlutina. Frekar fer ég köld og reyni á það og hvort sem mér mistekt eða næ þá reyndi ég allavega og það er það sem skiptir máli. Þá getur enginn sagt að ég reyndi ekki! Það var samt frekar gaman að sjá hvað þeim fannst þetta fabjúlús því venjulega hugsa ég bara um þetta sem eitthvað sem ég vil áorka og veit að þetta verður heavy mikil vinna eins og í París.

En draumarnir snúast ekki bara um fatahönnun, tísku og fabjúlússness. Ég dreymi líka um að fara til Ghana eða Kenýa og vinna með innfæddum. Hvort sem ég get hjálpað þeim eða þau mér þá veit ég að ég vil fara í allt annað samfélag og læra aðra hluti. Eða fara í frumskógana í Indónesíu og búa með frumskógarfólkinu í einhverjum tribe! Eða fara í Osho Meditation Resort í Indlandi! Þar sem allir klæðast vínrauðum kuflum! Eða til New Orleans á Mardi Gras! Það væri algjört ævintýri. Eða læra mannfræði í HÍ, hehe, það er líka draumur! 

Ég held að ég vilji bara reyna læra eins mikið og ég get um sjálfan mig og heiminn.

Úff...

þetta var spes blogg.

Draumar anyone?

Hvað langaði þig að verða þegar þú varst 12 ára?
(Eða hvað einkenndi áhugamál þín þegar þú varst 12 ára?)

Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Page Summary

Syndicate

RSS Atom
Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose