Home

Lok 2. árs

  • Apr. 30th, 2009 at 7:16 PM
 Seinasti formlegi skóladagurinn var í dag. Ég er búin að ljúka 2. árum í Listaháskóla Íslands. Skóli sem var svo fjarlægur mér fyrir 2 árum síðan er orðið mitt annað heimili og aðeins eitt ár er eftir. Eitt ár sem ég veit að verður fljótt að líða því þessi 2 ár virðast hafa flogið hjá. Það er aldrei tími til að stoppa og kvarta og kveina því það er alltaf svo gaman og svo mikið að gera. Ég er eiginlega komin með einhvers konar hræðslu fyrir því að útskrifast því ég nýt þess að vera í þessum skóla. En að vera útskrifuð gefur mér örugglega mörg spennandi og skemmtileg tækifæri þannig ég fer líklegast að reyna vinna mig upp einhvern ímyndaðan stiga og sanka eins mikilli reynslu og ég get þar til ég tek af skarið og geri mitt eigið. Kannski á Ítalíu, kannski París, kannski New York, kannski Stokkhólmi.

Allir þeir sem komu ekki á 2. árs sýninguna eru skyldugir til að koma á útskriftarsýninguna sem er eftir ár. Hún verður beyond, ég er hluti af fámennum en sterkum bekk með sterkar skoðanir þannig ég held að þetta verði flott... og dýrt.

Sumarfríið mitt er nánast byrjað þar sem ég á aðeins eftir að skila einni ritgerð og mæta í eina yfirferð og einn fyrirlestur þannig ég hef verið að fara yfirum seinustu daga vegna þess að fá sumarvinnu virðist vera það erfiðasta í heimi á Íslandi í dag. Hver einasta staða fær hundruðir umsækjenda og flestir vilja fá fólk sem getur unnið allt sumarið. Ég get aðeins unnið í 2 og hálfan mánuð.. starting now! Ég var ekki nærri því eins stressuð útaf þessu fyrir ári síðan enda var ég atvinnulaus allan maí og fannst það bara fínt en þá var ég að fara í ferðalag sem var einhvern veginn miklu ódýrara en þetta sem er framundan núna, aðalmunurinn er að í bakpokaferðalaginu gisti ég frítt eða í tjaldi en nú mun ég búa á Manhattan í stúdíóíbúð (vonandi).

Þegar ég útskrifaðist úr MH þá var ég sannfærð að þetta höfðu verið 3 bestu ár lífs míns, svo fór ég í LHÍ og allt stefnir í það sama, 3 bestu ár lífs míns... þannig er það ekki bara merki um að lífið verði alltaf betra og betra?

Þannig að þrátt fyrir atvinnuleysi, kreppu, peningaleysi að þá ætla ég að halda það því kannski er frelsi til sköpunar allt sem ég þarf.

Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Page Summary

Syndicate

RSS Atom
Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose