Ég er orðin nett spennt fyrir gamlársdegi núna á aðfaranótt hans. Mig langar að hangsa yfir daginn og spila kannski eitthvað spil eins og Trivial, borða ruslfæði, borða hangikjöt, horfa svo á annállinn á Stöð 2 og svo er ég spennt að sjá Skaupið núna enda eru það engir aðrir en Jón Gnarr og Ragnar Bjarnason (leikstjóri Næturvaktarinnar) sem sjá um það. Þannig eftir Næturvaktina þá hefur maður svolítið miklar væntingar af þessum mönnum. Meira að segja sá ég í Kastljósinu að Skaupið myndi ekki einblína eins mikið á pólitík eins og það gerir venjulega og er það einmitt ástæðan fyrir því að ég fatta aldrei helminginn af Skaupinu. Þannig já, allir verða að horfa á Skaupið enda "það allra heilagasta" á Íslandi!
Svo mun ég í fyrsta sinn upplifa áramótin í Reykjavík, believe it or not. Ég held að þetta verði bara fínt að sjá yfir borgina af 4.hæð og vonandi verður þetta ekki bara einhver reykmökkur. Í Garðinum hefur þetta samt alltaf verið kósí, frá miðnætti hafa oftast verið nær endalausar sprengingar allstaðar í kringum mann til eitt eða meira. Enda allir í keppni í Garðinum... um mestu sprengingarnar... mestu jólaskreytingarnar og svo framvegis.
---------------------
Þegar ég hugsa tilbaka um árið 2007 þá verð ég að segja að ég gæti ekki verið sáttari hvernig árið leið.
- Janúar: Ég keypti mér Macbook eftir að fyrri fartölva crashaði.
- Vann í Kattholti og bjargaði kisulífum.
- Ég saumaði margar flottar flíkur.
- Apríl: Fór í bústaðarferð á Hellisand.
- Apríl: Við Arena seldum fullt af drasli í Kolaportinu eina helgi.
- Apríl: Í MH var tískusýning með fötum sem ég hef hannað.
- Maí: Flutti inn í Stóragerði.
- Maí: Bjargaði Túttúmús Mjá sem hafði verið týnd í mánuð.
- Maí: Útskrifaðist úr MH.
- Júní: Fór til Ítalíu með Alexander og kynntist ítölskum mafíósum.
- Júlí: Fór til New York í FIT og kynntist æðislegu fólki frá Mexíkó, Taívan, Sviss, Frakklandi og Púerto Ríkó.
- Ágúst: Lærði að búa til sushi.
- Ágúst: Byrjaði í Listaháskólanum í fatahönnun.
- September: Kynntist strætókerfinu í fyrsta skipti.
- September: Fór í réttir í fyrsta skipti.
- September: Sá Dimmuborgir í fyrsta skipti.
- Október: Fór til London með Alexander.
- Hannaði tvö collection, eitt byggt á geimmörgæsamanni og annað á Versacebondage grískum gyðjum.
- Varð alveg helmingi betri í að teikna/skissa tískumódelmyndir, áferð á fötum og lita.
- Desember: Eignaðist svart jólatré!
Svo eru ýmsir aðrir hlutir sem ég skammast mín of mikið til að viðurkenna eða eru of dónalegir fyrir almenningslesningu.
---------------------
Næsta ár
Ég hef góða tilfinningu fyrir næsta ári. Janúar verður nánast bara undirbúningur fyrir París, peningareddun, kaupa flugmiða, redda íbúð og svoleiðis. Svo verð ég í París allan febrúar og ætla að reyna vera eins dugleg að blogga og ég gerði þegar ég var í New York. Í apríl munum við fara í bústaðarferð um páskana, enda ekkert nema hefð þannig allir verða að reyna eiga einhverja peninga þá! Svo kemur sumarið og ég mun örugglega reyna bara að vera dugleg að vinna svona einu sinni! En svo förum við á Wacken í ágúst og svo byrja ég á 2. ári í LHÍ og mun þá byrja að hanna/sauma fyrsta collectionið mitt og sýna það á tískusýningu trúlega vorið 2009.
Það vantar alls ekki plönin hjá mér og þetta eru nú bara aðalatriðin!

- Location:Le Jardin
- Mood:
sleepy - Music:Who Let In the Rain - Cyndi Lauper