Home

Annasöm vika í New York

  • Jul. 30th, 2009 at 2:02 AM

Ýmislegt hefur gerst á þessari viku síðan ég bloggaði síðast. Um helgina fórum við Alexander saman í Soho og versluðum. Alexander keyptir sér ofurdýr og ofurflott jakkaföt í Banana Republic oooog Alexander keypti líka handa mér Anna Sui kjól í afmælisgjöf! Eina sem ég vildi í allri ferðinni! Ég var í Anna Sui búðinni á Greene St. í Soho í þónokkurn tíma að velja mér kjól og fór í gegnum öll fötin í búðinni. Ég naut þess í botn. Það er svo miklu skemmtilegra að vera í dýrri designer búð ef maður ætlar í alvöru að kaupa eitthvað. Mig langar aftur! Ykkur finnst það kannski fáránlegt að mér fannst æðislegt að fá Anna Sui poka fyrir kjólinn minn sem ég gat labbað um alla New York. “Já, ég var að kaupa mér eitthvað í Anna Sui búðinni.” – hugsaði ég þar sem ég labbaði inn í hinar ýmsu búðir í Soho. Manni finnst maður eiga það meira skilið að labba inn í fínar búðir ef maður er með poka frá fínni búð. Hehe, langaði bara að deila þessu með ykkur.

 

Daginn eftir fórum við Alexander í mission til Queens fyrir Sunnu en náðum þó að versla líka fyrir okkur sjálf. Ég keypti Prototype leikinn handa Alexander í afmælisgjöf (ég veit, mitt budget var tööluvert lægra en hjá Herra Alexander). Svo keypti ég mér yndislega Steve Madden gladiator sandala og aðra hælaskó sem ég þarf að ná í næsta laugardag því það þurfti að panta þá. Það verður því gaman að fara aftur í Queens og ná í skóna mína. Eftir Queens ferðina brunuðum við Alexander aftur á Manhattan, fórum heim með pokana og fórum svo niður að bryggju þar sem við fórum í 3ja tíma siglingu um Manhattan. Sama sigling og ég fór í fyrir 2 árum síðan! Það er alltaf gaman að sigla framhjá Frelsisstyttunni og Brooklyn Bridge og slaka á og horfa á þessa stórkostlegu borg sem er í rauninni bara á lítilli eyju með risavöxnum húsum troðið á eyjuna.

 

Á mánudaginn vann ég til 18:00 eins og vanalega en um kvöldið fórum við á Hard Rock. Það var nææs. Líka eitthvað sem maður á að gera, að fara á aðal Hard Rock staðinn í heiminum á Times Square. Daginn eftir fórum við, fín til fara á Phantom of the Opera á Broadway. Alexander fór í jakkafötunum sínum og ég í Anna Sui kjólnum mínum. Ég sver það, við vorum flottasta parið labbandi á götum New York! Take my word for it! Phantom of the Opera var svo auðvitað æðisleg upplifun. Ég fékk oft gæsahúð og tónlistin var alveg ótrúleg. Miðarnir voru fokdýrir en þess virði. Síðasta kvöldið okkar Alexander var þ.a.l. fullkomið. Að labba um New York í fínu fötunum sínum með Phantom lögin á heilanum var klárlega besti parturinn!

 

Nú er Alexander farinn heim og ég flyt yfir á The Webster á morgun. Nú verður lífið mun rólegra og meira og minna bara vinna. En bara svo þið vitið er Anna Sui búin að tala nokkrum sinnum við mig, hvort sem hún er að segja “Excuse me” eða “Have you copied these already” þá er ég allavega til fyrir henni sem er frekar gaman. Svo er ég að kynnast hinum nemunum betur þannig þetta er mjög gaman. Í dag fékk ég líka gefins boli og húfu merkta Anna Sui, freeekar næs. Eitthvað sem nemar máttu taka úr skápnum sem var allt í mjög litlum stærðum þannig ég gat fundið eitthvað sem passaði mér, auðvitað! Alltaf gaman að eiga meira Anna Sui, me like!




Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Syndicate

RSS Atom
Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose