Ég er í læripásu... uss! Ekki segja neinum!
Ég man að þegar ég var í samræmdu prófunum þá vorum við Heiður alltaf bara að hanga á huga. Nú eru liðin fjögur ár og enn stundar maður huga í laumi. Ég hef svona lúmskt gaman af því að fara á sömu áhugamálin aftur og aftur og þykjast vita allt betur en aðrir. Áhugamálið "ferðalög" til dæmis. Ég veit varla um kork sem ég hef ekki svarað eins og besserwisser. Haha. Sumar greinar leggur maður auðvitað ekki í. Því þær eru of heimskulegar og illa unnar.
Ég byrjaði að læra kl. 11 í morgun og er búin að vera læra nokkuð stanslaust síðan. Klukkan er hálf fimm núna. Ég er búin að lesa allt efnið og glósa úr því (bæði landafræði og sálfræð) og restin af deginum (og kvöldinu) mun fara í að reyna muna allt í glósunum utan að. Þetta er ekkert stressandi. Ég þarf bara að setjast niður og læra þetta. (Rakel að tala við sjálfan sig).
Svo er þetta búið á morgun. Fer í vinnuna. Veit samt ekki hvernig ég ætti að halda uppá þetta þar sem allir aðrir eru enn í prófum. Júróvisjón á fimmtudaginn og 3 breezerar eftir í ísskápnum. Þannig ætla ég að halda uppá þetta.
Ég fékk myndirnar úr útskriftarmyndatökunni minni í dag. Þær eru svo flottar. Ljósmyndarinn photoshoppaði sumar skemmtilega. 60 myndir samtals, allar brúntónaðar og allar í lit. Ég ætla ekki að skella þeim á netið strax, þar sem ég er ekki búin að útskrifast finnst mér ekki mega sýna myndirnar af mér á netinu með stúdentahúfuna. En ég vel einhverja góða (án húfunnar) og læt hana hér fyrir neðan. Bara fyrir ykkur! Ég elska myndatökur. Kjólarnir mínir komu líka svo vel út.
Jæja... verð að teyja úr mér og halda áfram að læra. Jáh, JAKÉ ER SKO DULÉ!

- Location:Ríki lærdóms
- Mood:
geeky