Það er ýmislegt á dagskránni áður en ég fer út sem hefur komið upp bara nýlega. 9. júlí fer ég loooksins í klippingu og litun. Þá ætla ég að láta lita hárið aftur rautt og láta klippa það einhvern veginn - ekki ákveðið en einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að ég láti hárið ekki fjúka. Síðast þegar ég var í New York var ég með stutt hár, kannski tími til að prófa New York með sítt hár. Kannski er munur! Svo ætla ég ásamt Birtu bekkjarsystur minni að selja föt og dótarí í Kolaportinu laugardaginn 11. júlí. Þá hafið þið tækifæri til að bæði hitta mig og styrkja mig (eða Birtu) til ferðar okkar til New York, þar sem hún er líka að fara í internship :D Ég er að fara selja ýmsar gersemar eins og leðurjakka (sem er nr. 12), ógeðslega flotta háhælaða skó (nr. 37), rauða lolitu kjólinn minn (stærð ca. 8-10) og allskonar boli, buxur, skó og bara allt sem ég má missa á þessari stundu enda snýst þetta um survival í dýrustu borg heims (gengið er tvöfalt hærra núna en fyrir 2 árum) þannig nú duga engin vettlingatök! (Eða hvað sem maður segir...)
Sama kvöld fer ég í staffagrill og kveð þar með samstarfsmenn mína í bili, ég mun nú samt líklegast halda þarna áfram með skólanum aðra hvora helgi. Og svo 15. júlí, daaaginn fyrir flug þá er skipulögð myndataka af fötunum sem ég hannaði fyrir 2. árs tískusýninguna. Það verður líklegast mjög gaman og alltaf gaman að fá fleiri myndir í möppuna :)
Nú eru aðeins 10 vinnuvaktir eftir og 17 dagar í ferðina og ég finn hvernig spennan er að fara breytast í stress! Og þá aðallega stress yfir því hvernig ég eigi að klæða mig fyrsta daginn og halda fjölbreytni í klæðarburði í heilan mánuð á meðan ég er að vinna. Ég býst við að ég muni eyða miklum peningum í föt, ég þarf að borga 150.000 kr í gistingu (ég veit!) og svo mun ég líklegast eyða svipuðum pening í föt og þar á eftir vonandi ekki meira en 50.000 kr í mat *krossafingur* Vóh, ég var að gera mér grein fyrir því akkúrat núna hvað þetta er dýr ferð því ég er búin að kaupa flug á 63.000 kr. Við skulum ekkert segja samanlagt upphæðina upphátt. Nei.. nei.
En maður þarf að láta draumana sína rætast og á meðan maður sekkur sér ekki í neinar skuldir þá er þetta nú bara allt í lagi :D
Og btw. finnst engum öðrum skrítið að júní er strax að verða búinn?

- Mood:
busy