Ég komst inní Listaháskóla Íslands.
Lol.
Lol.
- Mood:
amused
Ég er búin í prófunum. Tómleiki.
Ég fór á fætur kl. 14:00, fór í sturtu og nú er ég hér. Frídagur. Það er ekkert sem mér ber að gera. Oftast þegar maður er í fríi þá er samt hugsunin bakvið eyrað: "Ég á eftir að gera þetta fyrir skólann." En núna er algjörlega ekkert. Nema kannski að henda öllu skóladótinu. Henda því.
Mig langar að pakka niður öllu á Miklubrautinni ofan í kassa. Þannig allir þessir hlutir sem bara alltaf eru þarna, eins og bækur, styttur og annað sé bara tilbúið til að fara. Sumu langar mig líka að henda. Henda.
Ég er komin með nýja áráttu. Að henda hlutum. Mér er farið að finnast það hreinsandi fyrir hugann. Það er gott að byrja upp á nýtt eins og Stóragerði verður svolítið. Ég er að flytja þangað akkúrat eftir menntaskóla. Passlegt því þetta eru tímamót. Nú tekur annað við.
Þó svo að ég hafi losnað við stóra stresskúlu núna eftir prófin þá er núna tíminn sem ég mun fá að vita hvort ég komist inn í skólana. Í dag eru bréfin frá Listaháskóla Íslands póstlögð og er því trúlega komin á morgun eða eftir helgi heim í Garðinn (því það er lögheimilið mitt). Ég veit ekki hvað ég á að vona, eða ekki vona. En þetta með FIT er líka óljóst. Ég er búin að skrá mig og borga námskeiðið í FIT í sumar. Þannig að hluta til vona ég að ég komist ekki inn, en ég vona að ég komist inn til að geta allavega fengið tækifæri til að hugsa um það. Hvort mig langi í alvöru að flytja burt núna.
Þið sem lesið bloggið mitt eruð trúlega löngu komin með leið á þessum endalausu skólahugsunum sem eru skrifaðar á þetta blogg. En bear with me, þar til ég fæ svörin :)
EUROVISION í kvöld!
Alexander og ég. Ógissslega sæt.

- Location:Kisulandið
- Mood:
hopeful - Music:Canon - Pachelbel