Ég er búin að vera "hita upp" fyrir Ítalíu með því að vera á stuttbuxunum úti á svölum í sólinni. Kyoko varð samt sár því ég lokaði hana eina inni í íbúðinni og hún fór að væla mjög hátt svo ég gafst upp og fór inn í tölvuna eftir svona 20 mínútna sólbað. Það minnir mig á það, ég þarf að kaupa sólarvörn.
8 dagar í Ítalíu. 6 dagar eftir í Kattholti.
Helgin var skemmtileg. Horfði á Marie Antoinette með Alexander á föstudagskvöldið, fór í partí til Helga á laugardagskvöldið og sunnudagskvöldið þá fór ég í leikhús á Belgíska Kongó, með Alexander, pabba hans og systur.
Marie Antoinette var góð mynd, enda Sofia Coppola mynd sem svíkur engann (Lost in Translation, Virgin Suicides). En ekki búast við neinu sögulegu um þessa konu, þetta er svona lollypop teenage mynd um sögulega konu/stelpu. Þröng korsett og allar krúsídúllur sem fylgja þessu tímabili ásamt unglingarokki samtímans. LOL.
Partíð var skemmtilegt, ég óverdósaði á nammi og allir voru skemmtilegir. Enginn fór yfirum á alkóhóli (til hamingju Helgi!) og Subway á Hringbrautinni um miðja nótt er alltaf skemmtilegt.
Belgíska Kongó var stutt en gott leikrit. Ég hugsaði um Arenu allan tímann (ekki kynferðislega nei) en mér datt hún oft í hug því leikritið átti sér stað á elliheimili þar sem umönnunarstúlkan var útlensk. Æh, það var góður húmor í þessu og einn gaurinn var svona ungur, hávaxinn með sítt hár og í boots, djöfull var það frábær karakter. Alltaf starandi út í loftið.

Ahh... ég lét myndir frá partíinu inná: http://pics.livejournal.com/fionale cruz/gallery/0000zsp8
Nú ætla ég í Nornabúðina til Alexanders að fá súkkulaðinornaköku!

Ahh... ég lét myndir frá partíinu inná: http://pics.livejournal.com/fionale
Nú ætla ég í Nornabúðina til Alexanders að fá súkkulaðinornaköku!
- Location:Stóragerði