Home

Bona sera! Ég er komin heim í smá tíma

  • Jun. 27th, 2007 at 2:22 PM
Ég er komin heim. Ítalía í eina viku var æðisleg. Ég var fegin samt sem áður að komast heim úr hitanum enda þreytandi að vera sveittur alla daga. Ferðin var samt svo æðisleg. Ég fékk að sjá svo margar hliðar á landinu. Bæði túristahliðina þar sem sölumennirnir elta mann á röndum, ríkidæmið og lúxusinn en svo líka venjulega lífið. Við hittum á svo frábæran veitingastað rétt fyrir utan Napolí eins og ég sagði frá í seinasta bloggi þar sem verðið var ódýrt og vinalegt fólk sem vill ekki kreista úr manni evrurnar eins og í Róm.

Vatíkanið var sveitt 4 tíma skoðunarleiðangur en svakaleg upplifun að fá að sjá þessu frægu málverk eins og ég hafði séð í Louvre. Ég veit nú ekki nöfnin á þeim en þessi frægu eftir Michelangelo (Fingur Guðs og Adam að snertast) og Raphael. Svo æðislegar skúlptúr styttur sem t.d. Michelangelo fékk innblástur frá. Svo var þar líka Péturskirkjan og Péturstorg þar sem maður gat séð hvar Páfinn kemur út á ýmsum mismunandi svölum. Ég var nú samt ekkert að fíla túristavarninginn þarna enda allt bara einhverjar Biblíumyndir, krossar og Maríustyttur.

Svo sá ég eitt æðislegt! Eitt kvöldið vorum við Alexander að ganga um og leita okkur að veitingastað þegar við sjáum svona rústir innan um grindverk á svæði sem gekk um 2-3 metra niður. Nú, ekki nóg með það að þetta voru flottar rómverskar rústir þá fórum við að sjá helling af kisum þarna niðri. Við gengum hringinn í kringum þennan garð með rústunum og sjáum svo að þetta var kisuathvarf! OG við gætum fengum frían skoðunarleiðangur um svæðið kl. 17:00 daginn eftir. Og auðvitað fórum við. Það var frábær enskur "guide" sem sagði okkur söguna frá svæðinu, að þarna hefðu verið 3 hof þar sem ýmsir guðir og gyðjur voru tilbeðnar og viti menn, sagði guide-inn okkar ekki bara að Júlíus Sesar var drepinn þarna! Á staðnum sem við ákváðum að skoða betur útaf kisunum! Hah! Það er frábært þegar maður rambar á svona hluti óvart. Athvarfið inniheldur um 300 kisur og er í svipuðu ástandi og Kattholt nema í Kattholti er náttúrulega hótelið sem Kattholt lifir á en þetta athvarf lifir aðeins á styrkjum. Ég keypti þar DVD disk um athvarfið og litla bók með sögum um kisur þaðan. Þetta er uppáhaldsstaðurinn minn í Róm!

Jæja, svo kom ég heim um 3 í nótt þar sem ein ítölsk rauðvínsflaska var tekin á mér, Rakel ekkert að hugsa að hún megi ekki koma með svona til landsins þar sem hún er bara 19 ára en hey, hún kostaði nú bara 6 evrur. Leiðindatollpúkar.

Jæja, þó ég var nú bara í burtu í eina viku finnst mér ég hafa misst af heilmiklu og ég vil fara hitta ykkur!!!

Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Syndicate

RSS Atom
Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose