Helgin var frábær. Á laugardeginum útskrifaðist ég og á sunnudeginum kláruðum við að mála og fluttum örlítið af húsgögnum inn. Svo um kvöldið á sunnudeginum héldum við Helgi upp á útskriftina heima hjá Helga (þið voruð nú flest þar) og það var frábært. Pítsur, Cthulu spilið, fórum útí bæ þar sem við Helgi reyndum að fylla okkur og svo fórum við nú bara uppá Miklubraut þar sem fólk (samt aðallega ég) fór að leka niður og sofna. Dóra og Siggi Sveinn! Takk kærlega fyrir mig!
Nú er ég úti í Stóragerði. Öll húsgögnin eru komin. Allur mánudagurinn fór í það. Hann var erfiður. Ég er búin að sofa hérna 2 nætur og það er bara kósí. Kyoko líkar vel og fannst fyrsti dagurinn voðalega skemmtilegur þar sem hún fékk að fara í könnunarleiðangur um húsið. Annars er hún bara róleg. Ennþá eru kassar úti um allt en áður en að vikan er búin þá verður trúlega komin almennileg mynd á þetta. Við erum komin með þvottavél og þegar rúllugardínurnar, sófinn, þurrkarinn og uppvöskunarvélin eru komin þá verð ég sátt og þá verður hægt að búa hérna almennilega. Það á samt líka eftir að láta dótarí svo hægt sé að láta upp ljós en það verður gert í dag.
Í dag er ég að fara að vinna og nú á hverjum degi þar til ég fæ fríhelgi ekki næstu heldur þarnæstu helgi. Ég byrja að vinna frá 8:00-13:00 á föstudaginn nema þá verð ég líka eftir hádegi. Þetta verður törn í Kattholti. 10 daga törn. Ég verð sko að venjast því að vakna kl. 7:00. Þetta reddast og áður en ég veit af (vonandi) þá verð ég komin til Ítalíu og sumarið fer að alvöru að byrja.
Híhí. Kyoko situr á stól við hliðina á mér. Hún er að herma.

- Location:Stóragerði
- Mood:
impressed
Nú er allt að koma til í Stóragerði og við erum búin að vera á fullu að mála þegar við getum. Á morgun förum við að kaupa lime-green málningu til að mála einn vegg í stofunni. Svo munum við líklegast kaupa nýjan 4ra sæta sófa í IKEA, svartan og við munum henda ljótu sófunum sem eru á Miklubrautinni. Þetta verður svo fensí og flott. Ég hlakka svo til að sýna öllum. Herbergið okkar Alexanders verður líklegast vínrautt (eða öðruvísi rautt) og hvítt og Markör húsgögnin hans fara af Sléttuvegi þar sem þau eiga engan lifnaðarrétt og í Stóragerðið þar sem þau munu lifa góðu lífi (ef við komum þeim áfallalaust upp). Svo á mánudag munum við færa internetið yfir og fara alfarið í Og1. Þannig það verður komið upp innan svona 3ja daga (7, 9, 13). Ég þoli ekki að þurfa eitthvað að vesenast með það, ég skil fólk svo vel þegar ég var að hringja í það frá Vodafone að það bara nennti ekki einu sinni að hugsa útí það. Maður vill bara hafa þetta í lagi og borga sanngjarnt verð.
Næstu mánaðarmótalaunum mun ég trúlega eyða í ýmsa nytjahluti fyrir Stóragerði; nýjan heimasíma, sófann, dílinn við Andra, nýtt eldhúsborð og mögulega grill. Það er svo sumarlegt að grilla.
Ég var að vinna í Kattholti í morgun. Það eru svo margir kettlingar þar núna, það er svo sorglegt að sjá þá en gaman á sama tíma. Þeir eiga að vísu ekkert heimili en þeir eru þó ekki úti í kuldanum. Kettlingar fara líka fyrst í Kattholti þannig þetta verður allt í lagi. Núna eru um 20 stykki af kettlingum sem eru 8 vikna og yngri! T.d. um jólin þá voru bara allsengir. Þetta er svo mikið á vorin. Hver vill kettlinga? :D
Næst á dagskrá:
- Mála og flytja inn í næstu viku.
- Einkunnir á þriðjudag.
- Útskrift á laugardag.
Jæja, hver vill svo hjálpa okkur að flytja á fimmtudaginn? Það verður pítsa og gaman! ^_^

- Location:Mikló
- Mood:
dirty
*Dreymir um New York*
Sumarið er hægt að nálgast. Ég fæ einkunnarnir mínar 22. maí og svo útskrifast ég 26. maí. Ég virkilega vona að ég nái öllu. Ég veit ekki einu sinni hvenær þessi endurtektarpróf eru og þau eru væntanlega ekki eftir 22. maí. Ég veit það samt ekki. En ef enginn er búinn að hafa samband við mig um að ég þurfi að taka endurtektarpróf þá hlýt ég að vera safe. Það er alltaf stresstilfinning sem fylgir þessum blessuðu einkunum. Svo þarf ég að fara senda út þessi boðskort fyrir *fermingar*veisluna mína. Í alvöru, mér líður eins og ég sé að fermast aftur. Lolz.
Í júní mun ég vinna frá 8:00-13:00 alla virka daga + aðra hvora helgi. En í allan júní? Nei! Haha. Ég mun vinna svo lítið í sumar, það er fyndið. Ég hlakka til að slappa af á æðislegu hóteli á Ítalíu og ég hlakka til að læra mikið í New York. Ég veit þið hatið mig öll sem eitt.
Svo í enda júlí eða ágúst mun vera stór grillveisla í Stóragerði þar sem haldið verður upp á afmælið mitt, Andra og Alexanders. Það verður æðislegt. Ég hlakka líka til þess.
Tækifæri. Það er það sem sumarið er. Tækifæri. Frelsi.
Ég geri mér grein fyrir að ég er ein um að hugsa þetta þar sem flestir sem ég veit um er aðallega að fara vinna í sumar. En peningar fyrir ykkur! Eyðsla hjá mér :s
Í dag var ég að mála í Stóragerði. Það er ekki lengur komið á hreint í hvaða herbergi ég verð í en ég er búin að bjóða Andra frekar gott tilboð ^^
Ég hlakka til alls.
Ég elska ykkur öll!
Verst að ég á ekki mynd af mér í bikini svo þið getið ímyndað ykkur mig á Ítalíu! Nei, okei... ég er of vond.

excited - Music:Nouvelle Vague
Ég er búin í prófunum. Tómleiki.
Ég fór á fætur kl. 14:00, fór í sturtu og nú er ég hér. Frídagur. Það er ekkert sem mér ber að gera. Oftast þegar maður er í fríi þá er samt hugsunin bakvið eyrað: "Ég á eftir að gera þetta fyrir skólann." En núna er algjörlega ekkert. Nema kannski að henda öllu skóladótinu. Henda því.
Mig langar að pakka niður öllu á Miklubrautinni ofan í kassa. Þannig allir þessir hlutir sem bara alltaf eru þarna, eins og bækur, styttur og annað sé bara tilbúið til að fara. Sumu langar mig líka að henda. Henda.
Ég er komin með nýja áráttu. Að henda hlutum. Mér er farið að finnast það hreinsandi fyrir hugann. Það er gott að byrja upp á nýtt eins og Stóragerði verður svolítið. Ég er að flytja þangað akkúrat eftir menntaskóla. Passlegt því þetta eru tímamót. Nú tekur annað við.
Þó svo að ég hafi losnað við stóra stresskúlu núna eftir prófin þá er núna tíminn sem ég mun fá að vita hvort ég komist inn í skólana. Í dag eru bréfin frá Listaháskóla Íslands póstlögð og er því trúlega komin á morgun eða eftir helgi heim í Garðinn (því það er lögheimilið mitt). Ég veit ekki hvað ég á að vona, eða ekki vona. En þetta með FIT er líka óljóst. Ég er búin að skrá mig og borga námskeiðið í FIT í sumar. Þannig að hluta til vona ég að ég komist ekki inn, en ég vona að ég komist inn til að geta allavega fengið tækifæri til að hugsa um það. Hvort mig langi í alvöru að flytja burt núna.
Þið sem lesið bloggið mitt eruð trúlega löngu komin með leið á þessum endalausu skólahugsunum sem eru skrifaðar á þetta blogg. En bear with me, þar til ég fæ svörin :)
EUROVISION í kvöld!
Alexander og ég. Ógissslega sæt.

- Location:Kisulandið
- Mood:
hopeful - Music:Canon - Pachelbel