Home

Back in time

  • Dec. 28th, 2008 at 4:51 AM
Sumarið 2006 fórum við fjölskyldan keyrandi um meginland Evrópu á húsbíl. Við vorum heilar þrjár vikur og hluta af ferðinni tókum við Alexander vídjó. Ég hef ekki lagt í að klippa efnið fyrr en nú þar sem ég fékk þá frábæru hugmynd að gefa mömmu og pabba myndina í jólagjöf. Þetta eru heilar 18 mínútur og fáiði þann heiður að sjá það hér.

 

Gæðin eru auðvitað ekki í hámarki þar sem ég þurfti að þjappa einhverjum 10 GB í 28 MB! En þið fáið þó að sjá þetta.

Maður þyrfti kannski að grafa upp Berlínarferðina og reyna að birta hana hérna! Hver veit.

Fabjúlús? Ónei.

  • Aug. 26th, 2008 at 3:03 PM
Ég er byrjuð í skólanum á fullu og ég er strax byrjuð á nýju collection, hatta- og hárprýðis collection! Það verður svo sannarlega áhugavert því ég hef aldrei sýnt höttum né hárprýði neinn sérstakan áhuga en er nú á fullu að gera research fyrir það. Þetta er tveggja vikna kúrs þannig það þýðir ekkert annað nema bara keyra á fullu í þetta. Verst að ég er ekki í 100% góðu ástandi þar sem ég er enn með augnsýkinguna og fór hún alveg úr böndunum aðfaranótt mánudags og þá var ekkert annað í boði en að fara á gjörgæsluna og fá einhverja skýringu á þessu öllu saman. Þannig ég fór ekki í skólann fyrsta skóladaginn sem var frekar fúlt en augað er að lagast, mjöööög hægt, það er ekki eins rautt og það var en ég þarf að setja einhvers konar smyrsl í augun á 3ja tíma fresti. Annars lýsir þessi augnsýking sér sem sýking í slímhúðinni í augunum og geri ég varla annað en að tárast, blikka augunum, kreista hægra augað útaf sting sem ég fæ og þurrka gleraugun mín vegna smyrslisins sem óhreinkar þau með bölvuðu löööngu augnhárunum mínum. Ég má ekki nota maskara né linsur þannig mér finnst ég bara vera ljótasta manneskjan á jarðríki... hvers konar byrjun er að á fabjúlús fatahönnunarskólanum? Ekki góð.

Um helgina fór ég í nokkuð ááhugavert ferðalag bara þar sem við keyrðum nánast torfæru yfir Kjöl sem er á milli Hofsjökuls og Langajökuls. Þarna var ekkert nema eymd og grót og við keyrðum í rúma 10-12 tíma og ég var nánast búin að æla.. nánast allan tímann. Við sáum semsagt þessa jökla örlítið en það var þoka yfir öllu saman, svo sáum við Kerlingafjöll og hverasvæðið þar sem var virkilega fallegt, við sáum líka Hveravelli sem voru líka mjög fallegir, Gýgjufoss og svo Gullfoss! Við enduðum á Akureyri, hjá honum Hreini gamla frænda hans Alexanders og gistum þar 2 nætur. Svo keyrðum við heim á malbiki! Það var algjör lúxus og fannst mér leiðin heim vera bara létt keyrsla og tók lítið sem ekkert á.

Hér koma örfáar myndir frá ósköpunum.

Gullfoss


Litríku krúttlegu túristarnir


Kerlingafjöll




Grjót og eymd

Endalok og upphaf

  • Jul. 3rd, 2008 at 11:58 PM
Seinasti dagurinn í vinnunni er á morgun. Þetta var skemmtilegt starf. Ég varð mun opnari með hverjum deginum sem leið og byggði samt auðvitað ákveðinn skjöld eða styrkleika gagnvart neikvæðu fólki. Þetta er líka starf sem gefur manni ákveðna friðþægingu. Ég vil gera mitt af mörkum og ég er ákveðin í því að fara í sjálfboðastarf einhvern tímann á næstu árum en þennan mánuð þurfti ég að vinna mér inn pening, þannig það var gott að ná þessum tveimur þáttum í eitt starf.

Ég hélt líka smá staffapartí hérna í gærkvöldi þar sem við bökuðum gulrótaköku! Það var virkilega gaman að gaman að hittast svona rétt áður en ég fer þannig þetta var hálfgert Unicefkveðjupartí. Synd og skömm að þetta starf varði ekki lengur en hver veit nema ég vinni með Unicef aftur í framtíðinni.

Ég var aðeins að byrja að pakka áðan. Ég held að ég verði nokkur skotheld með allt sem ég þarf. Allt sem ég á og nota er komið í ferðastærð hvort sem það er sjampó, koddi eða hárþurrka. Nefndu það! Nú á ég allt í svona oggupínustærð.

Það verður gaman að hitta alla aftur á Wacken. Við höfðum aldrei almennilegt kveðjupartí en áður en ég veit verður ferðin búin. Ég vona samt að ég nái að blogga eitthvað úti og mögulega setja inn myndir.

Ég mun sakna Kyoko virkilega mikið. Hún er búin að vera svo yndisleg þessa síðustu daga. Kannski finnur hún á sér að ég er að fara og er að reyna skora extra ruslapomsustig svo ég kaupi eitthvað fallegt handa henni. En það verður gaman að sjá hana aftur og þá verðum við glaðar saman.

Ég flýg á laugardagsmorgun og Alexander mun líklegast reyna að sækja mig á flugvöllinn. Svo munum við gista fyrstu tvær næturnar í Helsinki, förum svo kannski til Tallinn í Eistlandi og svo í Múmínland! Svo liggja leiðir væntanlega til Stokkhólms og svo niður eftir Svíþjóð. Kannski náum við að fara aðeins til Noregs, en hver veit.

Wish me luck!

Undirbúningur

  • Jun. 22nd, 2008 at 2:27 PM
Þetta hljómar kannski furðulega en eitt af því sem mér finnst skemmtilegast að gera er að undirbúa ferðalag. Það þarf mikið að plana, stundum kaupa og allskonar litlir hlutir sem þarf að muna eftir. Við Alexander erum að fara í töluvert erfiða ferð þegar kemur að undirbúningi en er svona allt að koma saman þar sem hann fer á morgun og ég svo 2 vikum seinna.

Það sem er svona erfitt við undirbúninginn að það eru margir hlutir sem maður þarf í svona ferðalag en aftur á móti megum við nánast ekki fara með neitt nema algjörar nauðsynjar. Í gær fórum við í mikla verslunarferð þar sem við keyptum minnstu svefnpoka sem ég hef nokkurn tímann séð, einn er 600 grömm og hinn er 800 grömm (Venjulegir eru svona aðeins yfir kílóið) og það besta var að við náðum þeim á mjög góðu verði, 2990 kr og 4990 kr í Útilíf, tveir seinustu sem voru svona litlir! Þá voru svefnpokarnir komnir, mikill léttir þar enda vorum við farin að hræðast að við þyrftum að punga út 10-20 þúsund fyrir þessu. Svo keyptum við okkur yndislega ferðakodda sem eru bara mjög þægilegir og lítið fer fyrir. Svo erum við búin að kaupa ferðahnífapör, ferðadósaopnara, moskítónet, regnslá, prímus, tjaldlukt, ferðaílát fyrir hárnæringu og sjampó (Í Mac!) og svona ýmislegt annað.

Þetta hljóma nú allt eins og nauðsynjar þar sem við verðum "vonandi" einhvers staðar í óbyggðum og það virðist sem Alexander eigi nú bara nánast enga peninga til að lifa af þarna úti þannig það verður víst bara núðlur og bollasúpur eins og við vorum búin að búast við. En við erum allavega tilbúin að lifa þannig.

Nú verður Alexander að taka þeirri erfiðu ákvörðun að velja hvaða EINU bók hann má taka með!

Jæja, ætli ég verði ekki að fara hjálpa drengnum að pakka, svo þarf ég nánast bara að fara pakka sjálf fyrir Ísafjörð á þriðjudag.

Róleg verslunarmannahelgi

  • Aug. 5th, 2007 at 5:19 PM
Ég ætlaði nú ekki að fara neitt um verslunarmannahelgina en svo á föstudaginn þá ákváðum við Arena að skella okkur á Flúðir yfir eina nótt. Arena reddaði varadekki (eftir að það sprakka hjá henni í Garðinum) og svo hittumst við og skelltum okkur í Bónus og Ríkið, "Hina heilagu tvennu." Þar keypti ég áfengi á Íslandi sjálf í fyrsta sinn, lögleg og allt. Mér fannst ég ekki eiga það skilið enda er ég ennþá undir tvítugu í anda, en debetkortið mitt segir sannleikann.

Við keyrðum svo af stað nokkuð efins hvort við værum með nóg af áfengi en ég sagði Arenu ekki að hafa áhyggjur, eftir að bjórinn og breezerinn er búinn þá vill alltaf einhver fylla okkur meira og í þetta skiptið var það frændi hennar Arenu sem gaf okkur nokkur skot af ... Tópas eða Ópal... ég man ekki hvort. Svo var ekkert að gerast á Flúðatjaldsvæðinu, flest bara fjölskyldufólk og við reikuðum þarna um í leit af fjöri sem var ekkert að finna. Svo fórum við Arena í sorglega tjaldið okkur um hálf fjögur og þá svaf ég í einhverja örfáa klukkutíma því tjaldið var alltaf að nýta sér vindinn til að ráðast á mig og reyna að kæfa mig til dauða þannig ég fór bara á fætur um hálf níu (hahahaha, ég veit! Ég að vakna á Árna tíma!).

Þegar ég fór á fætur þá áttaði ég mjög fljótt á því að ég var ekki hress. Maginn minn gerði uppreisn og ég gat varla hugsað mér að borða neitt fyrr en ég neyddi í mig banana og franskar seinna eftir hádegi. En það lognaðist af eftir nokkrar klósettferðir og ég var góð þegar ég hitti foreldra mína eftir hina frábæru traktoratorfæru á Flúðum.

Þeir voru helvíti fyndnir á traktorunum.


Arena í góðum fíling.


Svo fórum við foreldrar mínir og Gummi á húsbílnum á Þingvelli og urðum bensínlaus! Þar hringdum við í Arenu sem bjargaði okkur svakalega og kom með brúsa til okkar og við rötuðum þaðan yfir á Laugarvatn þar sem við kíktum á eina brennu...



Svo koma strákarnir mínir bara heim á morgun og ég verð að vakna eldsnemma til að ná í þá rugluhausana!

Ég í húsbílnum.

Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Syndicate

RSS Atom
Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose