Home

Loksins! Tölva!

  • Jul. 11th, 2008 at 5:10 PM
Ég vildi ad ég gaeti sett myndir inná frá ferdinni en tölvan er algjörlega á finnsku og med skrítnu stýrikerfi thannig ég verd víst bara ad reyna segja ykkur frá ferdinni, eda frá tví sem hefur gerst fram ad thessu. Í fyrsta lagi thá sakna ég Kyoko! Ad knúsa hana og kudlast med hana!

Ókei, semsagt 5. júlí thá lenti ég í Helsinki og Alexander tók á móti mér á flugvellinum. Sá dagur fór nánast algjörlega í hvíld thví ég var threytt eftir flugid og Alexander threyttur eftir námskeidid og bidina. Vid sváfum í 3 naetur á Hostel Academica í miklum lúxus (sem okkur finnst núna) med eldhúsadstödu og fínum rúmum. Tá daga skodudum vid Helsinki, hittum vini hans Alexanders af námskeidinu, fórum til Tallinn í Eistlandi sem var frábaert, vid fengum bara 5 tíma til ad skoda thar en thad var samt thess virdi. Allt var mjög midaldalegt og virkilega gaman, samt ekkert sérstaklega ódýrt eins og madur gaeti haldid.

Thann 8. júlí, daginn sem vid fórum til Tallinn tá komum vid úr ferjunni um 21:00, löbbudum á hostelid thar sem vid geymdum bakpokanna okkar og tókum svo metró um 10 km f. utan Helsinki, thar tjöldudum vid og gistum thar eina nótt. Nóttin var nokkud köld sam sem ádur. Daginn eftir tókum vid saman og tókum lest til Turku, 2 klst frá Helskinki. Thar höfum vid verid ad gista á tjaldsvaedi á Ruissalo eyju, rétt fyrir utan Turku og thad hefur verid bara fínt, fyrir utan fyrstu nóttina that sem vid maettum til Turku í rigningu og turftum ad tjalda í rigningu og sofa í svolitlum kulda. En vid erum samt vel búin med allt til ad halda okkur hita.

Í dag var svo adal dagurinn! Vid tókum straetó til Naantali, baer sem er 10 km f. utan Turku og thar fórum vid í MÚMÍNLAND! Reyndar hittum vid frekar pirrandi "know it all" stelpu frá Túnis sem vildi joina okkur í Múmínland í straetónum. Vid losudum okkur vid hana reyndar frekar fljótt thví vid vildum horfa á leikrit í Múmínlandi sem var á saensku og hún nennti thví ekki. Thetta átti líka ad vera dagurinn okkar thar sem vid aetludum ad vera sillí og vera barnaleg í Múmínlandi, hún skildi thad ekkert. Múmínland var frábaert og virkilega gaman ad eyda deginum thar, thetta er á sérstakri eyju thar sem er strönd og allskonar.

Thessi vika sem ég er búin ad vera í Finnlandi er búin ad vera frábaer, ég get ekki bedid eftir thví ad halda áfram ferdinni. Naest aetlum vid til Álandseyja thar sem vid gistum kannski 1-2 naetur og svo förum vid til Stokkhólms, Osló og svo líklegast Malmö. Ég er bara komin med eitt moskítóbit sem er örugglega met thví alla daga ber ég á mig anti-moskítósprey og svo eigum vid líka svona "after bite." Vid erum nokkud vel búin, erum med tjaldlampa í tjaldinu okkar, sjálfblásanlegar dýnur, pott, pönnu og ég gaeti haldi áfram. Adstadan á tjaldsvaedunum er mjög gód, núna er t.d. eldunaradstada med eldavélum, frítt ad fara í sturtu og allt nokkud hreintlegt.

Thad gengur erfidlega ad spara en vid reynum eins og vid getum ad njóta lífsins en samt spara. Oft smyrjum vid bara braud og höfum med okkur nesti og reynum ad sleppa thví ad fara á veitingastadi og elda frekar sjálf. Thad hefur gengid bara vel.

Vonandi get ég látid myndir inná naest!

Endalok og upphaf

  • Jul. 3rd, 2008 at 11:58 PM
Seinasti dagurinn í vinnunni er á morgun. Þetta var skemmtilegt starf. Ég varð mun opnari með hverjum deginum sem leið og byggði samt auðvitað ákveðinn skjöld eða styrkleika gagnvart neikvæðu fólki. Þetta er líka starf sem gefur manni ákveðna friðþægingu. Ég vil gera mitt af mörkum og ég er ákveðin í því að fara í sjálfboðastarf einhvern tímann á næstu árum en þennan mánuð þurfti ég að vinna mér inn pening, þannig það var gott að ná þessum tveimur þáttum í eitt starf.

Ég hélt líka smá staffapartí hérna í gærkvöldi þar sem við bökuðum gulrótaköku! Það var virkilega gaman að gaman að hittast svona rétt áður en ég fer þannig þetta var hálfgert Unicefkveðjupartí. Synd og skömm að þetta starf varði ekki lengur en hver veit nema ég vinni með Unicef aftur í framtíðinni.

Ég var aðeins að byrja að pakka áðan. Ég held að ég verði nokkur skotheld með allt sem ég þarf. Allt sem ég á og nota er komið í ferðastærð hvort sem það er sjampó, koddi eða hárþurrka. Nefndu það! Nú á ég allt í svona oggupínustærð.

Það verður gaman að hitta alla aftur á Wacken. Við höfðum aldrei almennilegt kveðjupartí en áður en ég veit verður ferðin búin. Ég vona samt að ég nái að blogga eitthvað úti og mögulega setja inn myndir.

Ég mun sakna Kyoko virkilega mikið. Hún er búin að vera svo yndisleg þessa síðustu daga. Kannski finnur hún á sér að ég er að fara og er að reyna skora extra ruslapomsustig svo ég kaupi eitthvað fallegt handa henni. En það verður gaman að sjá hana aftur og þá verðum við glaðar saman.

Ég flýg á laugardagsmorgun og Alexander mun líklegast reyna að sækja mig á flugvöllinn. Svo munum við gista fyrstu tvær næturnar í Helsinki, förum svo kannski til Tallinn í Eistlandi og svo í Múmínland! Svo liggja leiðir væntanlega til Stokkhólms og svo niður eftir Svíþjóð. Kannski náum við að fara aðeins til Noregs, en hver veit.

Wish me luck!

Advertisement

Latest Month

December 2009
S M T W T F S
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Tags

Syndicate

RSS Atom
Powered by LiveJournal.com
Designed by Michael Rose